BRF WASA ER MJÖG ÁNÆGT MEÐ PROLINE
Í lok hausts árið 2007 lauk Proline verkefni sem fól í sér endurlögn frárennslislagna í rúmlega 80 íbúðum innan Brf Wasa í Stokkhólmi. Fasteignin er byggð 1958. Formaður Åke Kokkin er mjög ánægður með verkefnið.
- Við komumst í samband við Proline í fyrsta skipti fyrir um það bil einu og hálfu ári síðan, á ráðstefnu pípulagningafyrirtækja í Älvsjö. Við vorum þá að velja á milli hefðbundinnar umskiptingar og endurlagnar, en valið var einfalt þar sem unnt var að framkvæma vinnuna án umtalsverðrar truflunar og án þess að íbúar þyrftu að yfirgefa íbúðir sínar. Við athuguðum einnig aðra valkosti innan endurlagnaraðferða en kusum að lokum Proline. Hér var það ekki aðferðin heldur aðallega verktakinn sem réð úrslitum. Proline vakti traust hjá okkur um leið og við höfðum góð samskipti frá upphafi. Góður andi, heilindi og persónuleg þjónusta leggja grunninn fyrir góða framkvæmd verkefnisins.
- Núna er vinnunni lokið og Proline hefur leyst verk sitt vel af hendi. Það eru þægilegir og mjög vinalegir strákar sem hafa framkvæmt vinnuna, það gekk auðveldlega að safna saman lyklum og að upplýsa íbúana. Við höfum yfir höfuð ekki heyrt neitt neikvætt frá þeim. Þar að auki höfum við fengið hraða og lipurlega framkvæmd lausn á frárennsliskerfum okkar, einmitt það sem við vildum, segir Åke Kokkin.