VATNSSKEMMDIR KOSTA SAMFÉLAGIÐ MEIRA EN 5 MILLJARÐAR SÆNSKRA KRÓNA Á HVERJU ÁRI.

 

Að gera við vatnsskemmdir í byggingum kosta meira en 5 milljarða sænskra króna árlega. Það jafngildir öllum bruna-, storm- og innbrotsskemmdum samanlögðum. Þetta sýnir vatnsskemmdarkönnunin frá árinu 2002. Þáttur sem örðugur er að meta kostnaðarlega séð eru þau óþægindi sem íbúar þurfa að þola svo vikum skiptir. Gólf sem brotin eru upp og að þurfa að bursta tennurnar yfir eldhúsvaskinum eru auka óþægindi ofan á allan kostnaðinn. Vatnsskemmdir valda þar að auki umhverfis- og hreinlætisvandamálum sem og að lykt og gerlar dreifast út sem einnig stuðlar að fjárhagslegu tjóni.

 

Í samvinnu við tryggingafélög hafa VVS-installatörerna með hliðsjón af vatnsskemmdarkönnuninni frá árinu 2002 skoðað ástandið nánar. Ekki kemur á óvart að meirhluti vatnskemmda er að finna í fjölbýlishúsum. Flestar skemmdir í frárennsliskerfum hafa fundist í fasteignum sem byggðar voru á árunum 1960 – 1980. Helsta ástæðan eru tæringarskemmdir eins og búast má við. Þó svo að meiri líkur séu á tæringu með hækkandi aldri röra er þess vert að geta að tæringarskemmdir fyrirfinnast einnig í frárennsliskerfum fasteigna sem byggðar voru á níunda áratugnum. 8 % af skemmdunum tengjast tæringu og sprungum í niðurfalli. Uppþvottavélin er meginástæða vatnsskemmda á heimilum. Hægt er að panta alla könnunina á heimasíðu VVS-installatörerna.
 

Nokkur ráð til að forðast vatnsskemmdir sem stafa af frárennsliskerfum:

  • Hreinsið niðurföll í baðkeri og sturtu með reglulegu millibili. Hreinsið og skolið frárennsliskerfið á 5 til 10 ára fresti.
  • Athugið og skiptið um frárennslisslöngurfrá uppþvotta- og þvottavélum þegar þess er þörf eða á 10 ára fresti.
  • Besta leiðin er að sjálfsögðu að fyrirbyggja vandamálin. Séu rörin í fasteigninni þinni frá sjöunda, áttunda eða jafnvel níunda áratugnum gæti verið kominn tími til að lagfæra eða athuga þau. Vitaskuld viljum við gjarnan að þú hafir samband við okkur hjá Proline. Þá hjálpum við til með að leggja mat á ástand röranna og steypum ný innan í þeim gömlu sé þörf á því.