EKKERT FRAMLAG TIL SORPHAUGSINS
Hefðbundin umskipting fallstamma hefur í för með sér umfangsmikið inngrip í húsið. En það þarf að sjá um, flokka og koma öllu því sem rifið hefur verið niður í burtu. Það er mjög dýrt og tímafrekt ferli. Samkvæmt niðurstöðum kannana sem gerðar hafa verið af Boverket leiðir hver íbúð þar sem umskipting fallstamma hefur farið fram af sér 1,4 ton af úrgangi. Og það er ekki hvaða úrgangur sem er: til dæmis hefur asbest oft á tíðum verið notað í efnið sem á að festa postulínsflísar hver við aðra og blý fyrirfinnst í flestum gömlum rörum. Þessi hættulegu efni gera ekki mein svo lengi sem þau eru föst á sínum stað. En þegar verið er að rífa niður veggi og brjóta upp gólf leysast þau úr læðingi og hafna fyrst í húsinu og leka svo smám saman út í umhverfið.
Margfaldaðu 1,4 ton af úrgangi með öllum þeim húsum og íbúðum sem þurfa á umskiptingu fallstamma að halda og það blasir við hve gríðarlegt magn af úrgangi það muni leiða af sér sé þetta gert með hefðbundnum hætti. Með tækni Proline byggjum við nýtt án þess að rífa niður. Gömlu rörin verða notuð á ný þar sem þau verða form nýju röranna. Efnið sem við notum í Proline-aðferðinni® er stýrenfrír fjölester sem unnt er að endurvinna. Auk þess stuðla bæði tækni og efni okkar að góðu vinnuumhverfi. Vinnu okkar fylgir ekki hávaði og tækni okkar veldur færri slitskemmdum þar sem við þurfum ekki að nota bilningsmaskiner.
Proline-aðferðin® sýnir að unnt sé að sameina lágt verð með umhverfishugsun og að skapa lausnir sem eru samkeppnishæfari en þær gömlu.
” Við viljum að sjálfsögðu tækni sem er ódýr á sama tíma og hún er mannúðleg og umhverfisvæn. Það er ekki ekki oft sem þetta þrennt fylgist að.”