UMHVERFISSTEFNA

Starfsemi Proline í endurlögn skólp- og frárennslislagna í fasteignum miðast við að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum.Umhverfisvinna okkar á því að einkennast af sífelldum umbótum og að losun mengunarefna sé fyrirbyggð. Við eigum að uppfylla lög og reglugerðir og önnur ákvæði sem ná utan um starfsemi okkar. Allir starfsmenn eiga að vera meðvitaðir um ábyrgð sína og skilja hlutverk sitt í umhverfisvinnunni.

 

VIÐMIÐUNARREGLUR OKKAR

Til að halda okkar eigin umhverfisáhrifum í lágmarki og ná markmiði okkar að vera góður umhverfiskostur eigum við að:
  • Búa til umhverfismarkmið og viðmið sem við fylgjum eftir og bætum stöðugt.
  • Sýna opinberlega og upplýsa um niðurstöður í umhverfisvinnu okkar.
  • Veita nauðsynlegum fjármunum til áhrifaríkrar umhverfisvinnu
  • Upplýsa, mennta og fá starfsmenn til að taka þátt í virkri, skipulagðri og kerfisbundinni umhverfisvinnu sem fyrirbyggir mengun og er í stöðugri framþróun.
  • Hvetja starfsmenn til að taka virkan þátt í unhverfisvinnunni.
  • Veita viðskiptavinum okkar upplýsingar um umhverfisvinnu okkar.
  • Vinna með virkum hætti að því að draga úr orku- og efnaeyðslu í starfsemi okkar og minnka samgöngur.
  • Stuðla að betri hringrás vara með áframhaldandi endurvinnslu.
  • Vinna stöðugt að því að gera efnið umhverfisvænna, draga úr samgöngum og leggja mikla áherslu á endurvinnslu í samvinnu við söluaðila okkar.