Proline®-aðferðin – Skynsama leiðin við að byggja ný rör og fallstamma.
Í mörgum húsum sem byggð eru fyrir 1980 eru skólprör, stammar og frárennslisrör farin að syngja sitt síðasta. Kostnaðarsöm útskipting á skólp- og frárennslisrörum sem felur í sér niðurbrot og óíbúðarhæft húsnæði er ekki verkefni sem nokkurn húseiganda dreymir um. Það eina sem verra er en að skipta út frárennslisrörum er væntanlega, þegar litið er til lengri tíma, að skipta þeim ekki út. Útskipting er nauðsynleg en það þarf ekki að vera gert á þann máta eins og það hingað til hefur verið gert.
Við hjá Proline segjum að hefðbundnar aðferðir við að lagfæra frárennslisrör heyri sögunni til. Sökum þess höfum við þróað nýja, brautryðjandi aðferð. Aðgerðin er fljótleg, felur í sér minna rask og óþægindi og kostar verulega minna en hefðbundin aðferð. En það sem kannski er allra mikilvægast er að hægt er að búa í íbúðinni, eða að starfssemi á sjúkrahúsi eða elliheimili geti haldið áfram eins og venjulega í þá tvo daga sem viðgerð tekur að jafnaði. Í aðferðinni felst sérþróuð endurlögn skólp- og frárennslislagna og á því sviði erum við einstakt fyrirtæki. Þörf markaðarins fyrir þjónustu okkar sést best á viðtökum hans en við höfum vaxið stöðugt í þau 13 ár sem fyrirtækið hefur starfað. Proline starfar í dag allstaðar í Skandinavíu og bráðum í fleiri löndum. Frá stofnun 1994 og fram til 2008 höfum við byggt ný frárennslisrör í meira en 35.000 íbúðum. Aðferðin hefur með öðrum orðum verið ítarlega prófuð hjá viðskiptavinum okkar - húseigendum, opinberum umsjónarmönnum fasteigna ríkis –og bæjarfélaga sem og fasteignafélögum sem reka fasteignir á leigumarkaði.
”Ímyndið ykkur fagmanlegan og þægilegan handverksmann… og ímyndið ykkur að þurfa ekki að upplifa umskiptingu fallstamma”