VIÐGERÐ ÁN ÞESS AÐ ÞAÐ SJÁIST (OG ÁN HÁVAÐA OG ÓHREININDA)

 

Hefðbundin aðferð við að skipta út fallstömmum hefur þau áhrif að íbúar geta ekki notað klósett og baðið, eða að þeir þurfa að flytja algjörlega út úr íbúðinni á meðan viðgerð stendur – og ekki er óalgengt að slíkar viðgerðir standi yfir í nokkra mánuði. Ekki eitthvað sem maður óskar eftir. Fyrir íbúa skapar slíkt ástand miklar áhyggjur og ónæði. Fyrir aldraða og hreyfihamlaða er þetta enn verra þar sem allir flutningar og rask eru mun erfiðari fyrir þessa hópa. Fyrir fyrirtæki, stofnanir, skóla, elliheimili og sjúkrahús er þetta enn meira vandamál. Á þessum stöðum er hvert pláss nýtt og ekki mikill möguleiki á að flytja fólk og starfssemi á meðan hefðbundinni viðgerð stendur.

 

Þessi vandræði eru úr sögunni með Proline-aðferðinni. Hún er svo góð að hún sést ekki. Við rífum ekki niður og skítum ekki út. Eini fylgifiskur aðgerða okkar er að ekki er hægt að nota eldhús og baðherbergi í nokkra klukkutíma þann dag sem húðun fer fram (þau virka þó eins og venjulega þegar vinnu dagsins lýkur). Þetta felur í sér að allir íbúar í húsinu þurfa ekki að flytja út eða verða fyrir óþægindum sem jafnan hafa fylgt slíkum aðgerðum. Engin óþægindi eða rask – svo einfalt er það.

 

Margir af íbúunum hafa hringt og kvartað – Iðnaðarmennirnir frá Proline komu bara ekki á umsömdum degi! – Skemmtilegt að geta þá sagt að þeir hefðu í raun og veru verið þar á réttum degi – og að vinnan væri nú þegar búin.”