TROSABYGGDENS BOSTÄDER KAUS RAMMASAMNING VIÐ PROLINE


Trosabyggdens Bostäder AB kaus að vinna í samstarfi við Proline í gegnum rammasamning. Samanlagt hefur Trobo rúmlega 950 íbúðir og 50 húsnæði til umráða í Trosa og Vagnshärad í Austur-Svíþjóð. Meirihlutinn af þessum fasteignum er byggður á árunum 1965-1975 og er þörfin á að lagfæra frárennslisleiðslur mikil.

- Við vorum að leita að nýjum lausnum á lagfæringu frárennslislagna, aðallega vegna þess háa kostnaðar sem fylgir hefðbundnum aðferðum. Annar þáttur var íbúaumhverfið, við vildum fá eins hraða og lipurlega lausn og kostur var á. Að sleppa við að brjóta upp gólf og veggi og að yfirgefa íbúð sína er mikill léttir fyrir íbúana. Við höfðum þá samband við Proline og fólum þeim það verkefni að lagfæra frárennsliskerfin í 18 íbúðum til að skoða gæði aðferðar þeirra. Við vorum mjög ánægð með verkið og kusum því að skrifa undir rammasamning við Proline um að lagfæra öll húsnæði okkar til lengri tíma. Vinnan verður framkvæmd jafnóðum á 5-6 ára tímabili, segir Christer Lourié, forstöðumaður fasteignasviðs hjá Trobo.