HÆGT ER AÐ LAGFÆRA ALLT KERFIÐ NÚNA, EÐA TAKA EINN HLUTA Í EINU. ÞÚ ÁKVEÐUR.
Upplýsingarnar frá tryggingafélögunum tala sínu máli. Leki frárennslisröra, kaldavatnsröra og heitavatnsröra eru aðal tjónavaldar í húsum. Þegar skipt er um fallstamma í húsum með hefðbundinni aðferð þarf að fjarlægja frárennslisrör, kaldavatns- og heitavatnsrör ásamt því að hugað sé að öllum vatnsþéttingum. Í þessu felast mikil inngrip og niðurbrot veggja og gólfa til þess að fjarlægja gömlu rörin. Sú vinna sem fer fram í einni íbúð hefur áhrif á allar íbúðirnar í húsinu, sérstaklega þær sem næstar eru. Þess vegna er allgengt að hugað sé að þeim möguleika að lagfæra allar lagnir í húsinu samtímis. Rífa allt út og setja upp nýjar flísar í allar íbúðir – hvort sem það er nauðsynlegt eða ekki.
Proline-aðferðin felur í sér mikinn sveigjanleika. Við erum óháð annarri vinnu sem fer fram í húsinu og húðun getur farið fram án þess að átt sé við lagnirnar að öðru leyti. Þar á meðal er hægt að húða salernislagnir á meðan gert er við lagnir í eldhúsi. Fyrir stærri blokkir felur þetta í sér að hægt er að búa til alveg nýtt frárennsliskerfi, án þess að taka fyrir öll baðherbergi í blokkinni. Einungis er átt við þau sem þurfa á því að halda. Þetta getur skipt sköpum, til dæmis í þeim tilfellum þar sem nýbúið er að endurnýja baðherbergi með öllum þeim kostnaði sem slíkri aðgerð fylgir.
” Frárennslisrörin eru orðin slitin en flest baðherbergin okkar eru í frábæru standi...”