EITT AF STÆRSTU ÍBÚAFÉLÖGUM NOREGS KAUS PROLINE
Árið 2006 var Proline treyst fyrir því að endurleggja frárennslisrör og fallstamma sem þjóna rúmlega 900 íbúðum innan íbúafélags Ringvegen skammt suður frá Þrándheimi. Verkefnið er stærsta staka verkefni Proline hingað til. Með þessu verkefni nær Proline stöðugri fótfestu á norska markaðinum. Verkefnið hófst í Þrándheimi haustið 2006 og stendur yfir í þrjú ár.
Íbúafélag Ringvegen hefur fallega legu, suður frá Þrándheimi. Það er nálægt útivistar- og skíðasvæðum og allri hugsanlegri þjónustu fyrir íbúana. Íbúafélagið er með eigin rekstrarskrifstofu og níu starfsmenn.
- Í mörg ár höfum við átt við vandamál að stríða varðandi leka í frárennslisrörum, segir Birger Knudsen, formaður hjá íbúafélagi Ringvegen. Þar sem rörin eru steypt í steinsteypunni, hafa bráðar viðgerðir haft í för með sér mikið álag fyrir íbúa okkar hingað til. Ég vil virkilega þakka þeim fyrir þolinmæði þeirra. Í framtíðinni verður það betra. Við hlökkum mikið til að fá ný rör, lögð með Proline tækninni!
- Vegna þess að við erum svo þróuð tæknilega séð getum við jafnvel ráðið við þessa gerð af sprungnum plaströrum sem er að finna innan Ringvegen, segir Sten Edström, stofnandi Proline.