PROLINE SKÓLINN MEÐ ÁHERSLU Á GÆÐI

 
Okkar eigin Proline skóli er mikilvægur hluti af gæðavinnu okkar. Árið 2004 var í fyrsta skiptið boðið upp á sérmenntun í aðferðinni okkar sem hefur í gegnum árin endurbæst. Allir nýráðnir starfsmenn fara í gegnum Proline skólann og í honum er farið yfir verkferla okkar og verklegu vinnuna. Miklum tíma er varið í það hvernig á að viðhalda gæðunum í gegnum alla framkvæmdina, frá skráningu hverrar lagfærðrar einingar til skjölunar. Einn af reyndustu verkefnastjórunum okkar ber ábyrgð á þessu. Naumast er nauðsynlegt að nefna það að mikilvægur hluti námskeiðsins tekur á því hvernig nýtt rör er búið til. Annar mikilvægur hluti er vinnuumhverfið þar sem við förum nákvæmlega yfir allar þær reglur sem framfylgja þarf á vinnusvæðunum. Þetta er gert til að skapa gott vinnuumhverfi fyrir starfsmenn og truflunarlausa framkvæmd fyrir viðskiptavini okkar.