PLAST- OG POTTRÖR


Núverandi pottrör

Rörin í frárennsliskerfum samanstanda að mestu leyti af potti. Var þetta algjörlera ríkjandi þar til í byrjun sjöunda áratugarins en þá hófu plaströrin innreið sína. Oft á tíðum eru pottrör þó enn sett upp. Plaströr standast til dæmis ekki kröfur um brunavarnir sem nauðsynlegt er í byggingum með afmörkuðum brunahurðum. Pottrör eru að meðaltali 4 mm að þykkt með fráviki upp á 1 mm. Mikill breytileiki er á gæðum þeirra.

 

Tæring

Við tæringu hvarfast járn við súrefni í vatni og lofti og eyðist smám saman. Gert er ráð fyrir því að pottrör tærist að meðaltali um u.þ.b 1 mm á 10 ára fresti en breytileikinn er mikill. Þetta hefur stundum í för með sér að pottrörið gæti á sumum stöðum verið í upphaflegu ástandi með 3 mm þykkt en á öðrum stöðum í leiðslukerfinu gæti efnið hafa orðið fyrir miklu meira tjóni. Það er mjög erfitt að meta ástand röranna. Séu brúnir blettir orðnir sjáanlegir á frárennslisrörunum er ekki seinna vænna en að grípa til ráðstafana. Tæring gæti verið langt komin í pottrörum án þess að sjáanlegar vatnsskemmdir hafi birst. En við hreinsun röranna losna lög sem meðal annars samanstanda fitu og lekinn er óhjákvæmilegur.

 

Núverandi plaströr

Fyrstu plaströrin voru af gerðinni HT. Með tímanum urðu þau brothætt og eru endar röranna sérstaklega viðkvæmir þar sem þeir verða fyrir mestum þrýstingi. Unnt er að lagfæra þá með aðferðinni okkar. Kosturinn við öll plaströr er að botnfallið frá frárennslisvatninu festist ekki á sama hátt og í pottrörum. Hreinsunin verður auðveldari.