10 ÁR MEÐ PROLINE
Fyrir meira en tíu árum endurlagði Proline skólp- og frárennslislagnir hjá L E Lundbergs Fastigheter í Arvika í Svíþjóð. Í september árið 2007 var kominn tími til 10 ára ábyrgðarskoðunar á fasteigninni Långdansen sem byggð var í lok sjöunda áratugarins.
Fastighets AB L E Lundberg er einkafyrirtæki og einn af stóru fasteignaeigendunum í Svíþjóð. Fasteignirnar samanstanda að mestu leyti af íbúðum sem liggja miðsvæðis og skrifstofu- og verslunarhúsnæði.
- Við vorum ekki lengi að ákveða hvaða aðferð ætti að beita, segir Rolf Carlsson, forstöðumaður hjá Lundbergs Fastigheter. Við vorum í miklum vandræðum í einni af byggingunum okkar. Í þessari 20 íbúða byggingu var leki á milli klósetts og baðs í einni af íbúðunum og hafði vatnið rutt sér braut til íbúðanna fyrir neðan. Á sumum stöðum höfðu plaströrin sprungið og að hluta til molnað niður.
Við höfðum þá samband við Proline sem gat leyst vandræði okkar á miklu enfaldari hátt heldur en að skipta um rör. Það allra besta var að enginn þurfti að yfirgefa íbúð sína, vinnunni var fljótlega lokið í öllum íbúðunum og baðherbergi og eldhús voru nothæf á nýjan leik.
- Nú hafa árin liðið og í haust framkvæmdum við 10 ára ábyrgðarskoðun. Við tókum stikkprufu í hverju stigahúsi auk þess sem við tókum myndbandsupptöku af fallstömmunum. Niðurstöðurnar, sem komu okkur ekki sérlega á óvart, sýndu að Proline rörin voru í upphaflegu ástandi. Ég er hæstánægður, hefðum við stuðst við hefðbundna aðferð hefði kostnaðurinn orðið talsvert hærri. Nú varð kostnaðurinn á íbúð um það bil sá sami og það kostar að flytja einn leiganda á meðan á hefðbundinni umskiptingu stendur. Venjulega bætist einnig kostnaður fyrir að koma baðherbergi aftur í upprunalegt horf ofan á það. Þetta er mikill munur þegar Proline vinnur verkið.
- Ég mun nota endurlögn frárennsliskerfa í framhaldinu, þessi aðferð er málið! bætir Rolf Carlsson við í lokinn.