LAUS STÖRF

Við erum að leita að starfsfólki. Sendu okkur umsókn þína og náms/starfsferilsskrá áproline@proline.is

ERT ÞÚ HANDLAGIN(N)?
Þá getur þú orðið tæknimaður hjá okkur.

Áskorun til þín: Sértu handlagin(n), þjónustulunduð/aður, finnist gaman að vinna í liðum og takir gjarnan að þér nýjar áskoranir getum við boðið upp á skemmtileg vinnuverkefni og möguleika innan spennandi tæknisviðs okkar. Þú myndir vinna í nánum samskiptum við viðskiptavini okkar og myndir framkvæma með starfsfélögum þínum öll þau fjölbreytilegu og tæknilega krefjandi verkefni sem vinnuferlar okkar krefjast. Vinna gæti farið fram í öðrum sveitarfélögum.

 

Bakgrunnur þinn: Leiðtogahæfileikar og rík þjónustulund eru eiginleikar sem við metum mikils. Sjálfstæði, ábyrgðarkennd og hreinskilni eru skilyrðislausar kröfur af okkar hálfu. Reynsla af byggingarvinnu, vélsmiðju eða öðru slíku er talin kostur. Við gerum engar formlegar kröfur til verklegrar menntunar, með því að vera verkséð(ur) og skynsöm/samur kemst þú langt. Við bjóðum upp á nauðsynlega menntun þar sem þú lærir á sérstakan útbúnað okkar. Almenn ökuréttindi eru nauðsynleg.