"ALLT FÓR MJÖG VEL!”
Eftirfarandi er frásögn Sabinu Hansson hjá Kristinehamns Bostads AB af endurlagningu fallstamma í 48 íbúðum á
Djurgårdsplatån 1 í Kristinehamn
:
- Frárennslisleiðslurnar sem gerðar eru úr potti voru í lélegu ástandi og báru margar vatnsskemmdir vott um það. Við spurðumst fyrir um kostnaðinn við að skipta um allar leiðslur og fallstamma og gátum slegið því föstu að hann yrði of hár auk þess sem þetta yrði mikið vandamál fyrir leigjendurna. Endurlögn röra með Proline-aðferðinni var góður valkostur. Þar sem baðherbergin voru í slæmu ástandi voru umfangsmiklar viðgerðir framkvæmdar. Einnig var skipt um niðurföll og vatnslása fyrir eldhús og vaska. Þegar búið var að gera við öll baðherbergin gat Proline hafist handa við vinnu sína að endurleggja fallstamma og leiðslur. Vinnan skjalfærðist á myndband þar sem við gátum sannreynt gæðin. Allt fór mjög vel. Strákarnir sem voru á staðnum sinntu vinnu sinni frábærlega! Þessi valkostur, að geta endurlagt rörleiðslur, var fyrir okkur besta lausnin vegna lægri kostnaðar og að truflun var haldið í lágmarki fyrir leigjendur þar sem enginn þurfti að yfirgefa íbúð sína.