VIÐGERÐIR Á NÝJAN MÁTA INNAN KALMARHEM
Kalmarhem AB er fasteignafélag sem er algjörlega í eigu bæjarfélagsins Kalmar í Smálöndum. Félagið á um það bil 5000 heimili og eru um það bil 1000 af þeim stúdentaíbúðir. Þar að auki á Kalmar húsnæði sem nema um það bil 22 000 m². Samanlagt eru þetta
300 000 m². Fyrir tæplega 300 íbúðir hefur Kalmarhem valið sérstaka leið til viðgerða á ódýran og lipurlegan hátt. Íbúðirnar eru með plaströr frá árunum 1970-1971 sem þarf að lagfæra. Þessi sérstaka leið felst í því að Proline sem undirverktaki Skanska (stærsta byggingarfyrirtæki Svíþjóðar) fer inn á undan til að steypa ný rör og fallstamma í öllum íbúðum, allar leiðslur nema niðurföllin eru endurlagðar. Þar á eftir fer Skanska inn og gerir við öll baðherbergin. Gömlu niðurföllunum er skipt út auk þess sem aðrar viðgerðir fara fram í baðherbergjum og eldhúsum.
- Proline hefur nú þegar endurlagt leiðslur í nokkrum íbúðum innan Kalmarhem þannig að okkur er kunnugt um tæknina. Við lögðum mikla áherslu á það að þessi aðferð hefði ekki mikil inngrip í för með sér eða ylli íbúunum óþægindum, segir Ulf Kaldner hjá Kalmarhem. Okkur hefur ekki borist neinar kvartanir frá íbúunum. Bónusinn er sá að mögulegt er að gera við bæði baðherbergin og leiðslurnar á lægra verði.