HVE LENGI ENDAST FALLSTAMMARNIR?

 

Lífslengd fallstamma í pottröri fer eftir tæringunni að innan. Í rannsókn sem framkvæmd var hjá KIMAB, helsta tæringar- og málmrannsóknarstofnun Evrópu, kemur fram að lífslengd fallstamma geti verið miklu styttri en talið hefur verið hingað til. Að jafnaði hefur lífslengd fallstamma í pottrörum verið talin vera um það bil 50 ár. Jörgen Almqvist frá KIMAB er ósammála því.

 

- Út frá reynslu minni og tölfræði frá þeim verkefnum sem ég hef unnið getur maður slegið því föstu að pottrör, eða „ grárör”, hafa miklu styttri lífslengd en það, segir Jörgen.

 

Fram kom í rannsókn KIMAB að munurinn gat verið allt að 20 ár á milli fallstamma í sama húsinu. Stystu lífslengdina áttu lárétt eldhúsrör en þeir rörhlutar sem voru í bestu ástandi voru lóðréttu baðherbergisstammarnir. Meðaltal lífslengdar pottröra er þá í raun um það bil 40 ár en eldhúsrörin voru þá þegar útslitin eftir 30 ár. Rannsóknin sýnir að mikill mismunur er á milli ólíkra tegunda fallstamma og ólíkra hluta sama fallstammans þegar að tæringu kemur. Meðal annars hefur komið fram að lóðréttu fallstammarnir í eldhúsum eru í miklu verra ástandi en lóðréttu fallstammarnir í baðherbergjum. Þetta stafar af því að í eldhúsum rennur vatn oftar í gegnum rörin en auk þess er vatnið einnig ríkara af botnfallsmyndandi efnum þar sem matarleifar og fita mynda lag sem getur bundið í sig raka og klóríð. Lífslengdin fer með öðrum orðum eftir því hvernig rörin eru notuð, bæði þegar kemur að því hve oft er sturtað niður og hverju er sturtað niður.

 

- Ég mæli með því að kanna rörin og íhuga hugsanlegar viðgerðir þegar þau eru að verða 30 ára í staðinn fyrir að tilneyðast til að grípa til örþrífaráða þegar leki hefst. Niðurstöður okkar sýna að viðhaldsþörf fallstamma í húsum og fasteignum byggðum á sjönda og áttunda áratugnum er mikil, segir Jörgen að lokum.