HRÓÐUR PROLINE
Í dag erum við markaðsleiðandi á okkar sviði: endurlögn skólp- og frárennslistamma í byggingum. Við höfum framkvæmt viðgerðir í um það bil 35,000 íbúðum. Tækni okkar er vernduð af fjölda einkaleyfa í Skandinavíu, Evrópu og í Bandaríkjunum. Við erum um það bil 165 starfsmenn og erum aðgengileg um land allt í Svíþjóð og Noregi. Proline hefur sterkan og framsýnan eiganda í iðnaðarsamtökunum Lifco AB sem er dótturfélag Carl Bennet AB.
Í dag hafa margir trú á hugmyndum Proline. Frá upphafi höfum við haft sterkan vöxt og útbreiðslan hefur verið stöðug, eitthvað sem hefur gert okkur að framúrskarandi fyrirtæki. Við höfum verið talið eitt af hröðustu vaxandi fyrirtækjunum í Svíþjóð mörg ár í röð. Kannski er helsta táknið um það að við hlutum verðlaun Swedbank fyrir atvinnurekanda ársins, árið 2007, eitthvað sem við erum vitaskuld mjög stolt yfir. Við hjá Proline hneigjum okkur og þökkum fyrir hrósið. Og það er ekki án þess að við roðnum smá líka.
””Sem meðlimur í stjórninni langar mig að vera öruggur í að taka svo stóra ákvörðun, að við veljum trúverðugan söluaðila sem hugsar fram í tímann og getur lifað með okkur langt inn í framtíðina”