STURTAÐU EKKI PENINGUM NIÐUR
Hefðbundin aðferð við að skipta um frárennslisrör hefur marga ókosti, ekki minnst fjárhagslega. Að rífa í burtu eldri lagnir felur í sér mikinn kostnað og óþægindi og stundum er ekki hægt að búa í húsinu á meðan framkvæmdum stendur. Þetta er mjög dýrt fyrir húseigendur og nokkuð sem enginn vill lenda í.
Með Proline-aðferðinni þá þarf ekki að taka gömlu lögnina út né að yfirgefa húsið á meðan viðgerð stendur – því við byggjum nýju rörin innan í þeim gömlu. Meðaltími fyrir hverja íbúð eru tveir dagar, það er allur sá tími sem við þurfum. Seinni dagurinn fer yfirleitt einungis í það að ganga frá vatnstengingum. Hæfu starfsmennirnir okkar og vel útfærðir vinnuferlar gera það að verkum að kostnaðurinn er brot af því sem hefðbundin aðferð felur í sér. Þegar kemur að fyrirtækjum og félögum geta þau rekið starfsemina eins og venjulega. Ekki verða neinar kostnaðarsamar truflanir í rekstri.
Síðast en ekki síst leyfir tækni okkar þér að lagfæra einungis það sem þarf að lagfæra. Ekki þarf að gera önnur inngrip í baðherbergjum sem að öðru leyti eru í góðu standi. Þetta gerir þér kleift að dreifa viðhaldskostnaðinum betur svo að fjárhagur þinn verði betri.
” Ef það þarf að rífa niður veggi til að skipta út frárennsli í blokkinni mun það kosta mikið fyrir hverja og eina íbúð. Algengur kostnaður á hverja íbúð fyrir viðgerð er um 3.000.000...”