GILDISMAT OKKAR
Við hjá Proline höfum viðskiptavininn ávallt í öndvegi. Það er viðskiptavinum og starfsmönnum okkar að þakka að við séum jafn árangursrík og raun ber vitni. Sérhvert verkefni er einstakt og viðskiptavinurinn á alltaf að vera ánægður með niðurstöðurnar. Við vinnum alltaf út frá sérstökum forsendum, þörfum og óskum viðskiptavinarins auk þess sem við leysum vandamál af mikilli þekkingu og notum tækni sem hefur reynst mjög vel. Proline samanstendur af okkur sem hér vinnum og viðhorfi okkar til verkefnanna. Gildismat okkar skiptir þar af leiðandi öllu máli fyrir það hvaða augum viðskiptavinir okkar líta okkur. Þess vegna viljum við að litið sé á Proline sem:
Leiðtoga
– Proline er markaðsleiðtogi. Við erum með lausnir sem hafa marga kosti í samanburði við hefðbundnar aðferðir við að skipta um fallstamma. Við eigum að veita gæðaþjónustu í öllum smáatriðum, alltaf. Við búum yfir mikilli þekkingu þar sem við höfum þróað aðferðina sjálf. Við leggjum mikla stund á að fylgjast með tækniþróun til að hafa ávallt aðgang að bestu tækninni og sækjumst stöðugt eftir að bæta vinnubrögð okkar. Það felur í sér að við komum alltaf fram sem leiðtogi á sama tíma og við erum auðmjúk og þægileg.
Fagmanlegt fyrirtæki
– Proline axlar ábyrgð. Gæðaþjónusta er veitt frá upphafi til enda og í öllum smáatriðum.
Við leitum að lausnum og erum hreinskilin. Við skilum gæðuþjónustu þegar bæði er litið til styttri og lengri tíma. Og við stöndum við loforð okkar. Fagmennskan felur í sér að Proline er öruggt val sem fer fram úr öllum væntingum.
Þægilegt fyrirtæki
– sem felur í sér að Proline er þægilegt í öllum sínum samskiptum. Það felur einnig í sér að við einbeitum okkur að góðri þjónustu og erum sveigjlanleg. Að við getum ráðið fram úr margskonar aðstæðum. Við leggjum okkur fram um að vera áreiðanleg. Það að vera þægilegur felur einnig í sér að við erum auðmjúk í hlutverkinu sem markaðsleiðandi.