EINKALEYFISTÆKNI
Sérþróuð tækni Proline er vernduð af víðtækum einkaleyfum í flestum löndum Evrópu og í Bandaríkjunum.
PRÓFANIR
Proline-aðferðin® notast við stýrenfrítt fjölesterplast sem er styrkt með gleri. Niðurstaðan er vatnsþétt efni með mjög gott slitþol. Efnið hefur farið í gegnum margar prófanir hjá SP (Tæknirannsóknarstofnun Svíþjóðar) og Sintef með frábærum árangri.
Sért þú samt ekki viss getur verið gott að vita að efnið er meðal annars notað sem tæringarvörn á olíuborpöllum í Norðursjó og sem vörn á þilförum bílaferja í Norður-Noregi til að vernda þau gegn nagladekkjum bílanna.
TÆKNIÞRÓUN
Við leggjum okkur fram með að fylgjast með þróun tækninnar til að hafa ætíð aðgang að þeirri bestu og sækjumst sífellt eftir að bæta vinnubrögð okkar. Við leggjum mikla áherslu á að vinnan sé framkvæmd á fagmanlegan máta og að okkur sé kleift að ganga til móts við kröfur og óskir viðskiptavina okkar.
|