GÆÐASTEFNA

Proline hefur þá stefnu í starfsemi sinni við endurlögn skólp- og frárennslislagna í fasteignum, að kröfur þínar og samfélagsins séu uppfylltar. Upplýsingar um vörur okkar og þjónustu eiga að vera skýrar. Við leggjum mikla áherslu á að viðskiptavinurinn skilji hvað sé fólgið í vinnu okkar og að uppfylla réttmætar væntingar hans. Gæðavinna okkar einkennist þess vegna af stöðugum úrbótum. Allir starfsmenn eiga að vera meðvitaðir um ábyrgð sína og skilja hlutverk sitt í gæða- og umhverfisvinnunni.  

 

VIÐMIÐUNARREGLUR OKKAR

Gæðavinna Proline er byggð á trausti, skýrleika, ábyrgð, hæfni, einbeitingu og nákvæmni. Gæði þýða eftirfarandi fyrir Proline:

  • að framkvæmd vinnunnar og útkoma hennar sé af þeim gæðum sem samsvara væntingum, þörfum og óskum viðskiptavina okkar. Sé ljóður á vinnu okkar skuli gera við hann hratt. Með þeim hætti er hægt að fyrirbyggja slík mistök í framtíðinni. Hvað brestum líður erum við með það að markmiði að þau verði engin.
  • að gæðin séu á ábyrgð hvers starfsmanns og að þau einkenni alla starfsemi hverrar einustu deildar fyrirtækisins.
  • að þau umleiki allt það sem við gerum frá fyrstu samskiptunum við viðskiptavin til þess að vinnu lýkur. Viðleitni okkar er að kjósa alltaf gæðameðvitaða söluaðila.
  • að við sækjumst eftir sífelldum úrbótum í gegnum þróun, menntun og að deila með kerfisbundnum hætti reynslu okkar.