TILLITSSEMI OG UMHYGGJA FYRIR ÍBÚUM ELLIHEIMILIS Í SKÖVDE


Árið 2006 framkvæmdi Proline verkefni á elliheimilinu Östermalm í Skövde. Pöntunaraðili vinnunnar var sveitarfélagið.

- Öll starfsemin hélt áfram með venjulegum hætti á meðan við stóðum að verki, segir Anders Sandin hjá Proline. Íbúarnir þurftu ekki að yfirgefa herbergin sín og urðu fyrir sáralítilli truflun. Við endurlögðum fimm fallstamma með tilheyrandi leiðslum frá vaskborðum, eldhúsum og sjúklingaherbergjum. Starfsemin fór fram á öllum sex hæðum hússins og með lipurlegum hætti. Proline-aðferðin er jafn mikil snilld og hún er einföld og tillitsöm. Forstöðumaður sveitarfélagsins var mjög ánægður með hvernig við stóðum að verki. Og sá sem bar ábyrgð á starfsemi elliheimilisins sagði að það hefði komið honum skemmtilega á óvart hversu lipurlega vinna okkar fór fram, segir Anders Sandin.