5. EFTIRSKOÐUN/SKJÖLUN

 

Þegar við höfum skilað af okkur verkinu hefur allt frárennsliskerfið í húsinu verið endurnýjað með miklu sterkara efni og gert hefur verið við allar þrengingar á rörinu sem hafa átt sér stað í tímans rás. Þegar nýja rörið hefur harðnað þá er framkvæmd gæðaprófun á verkinu. Við förum með myndavél í gegnum allt kerfið og myndum það allt. Þegar það er búið þá setjum við klósett og annað á sinn stað sem varð að fjarlægja til að komast að lögninni.