EFNI

 

Efnið sem við notum til að steypa ný rör er plast byggt á fjölester. Vörur úr fjölester hafa verið framleiddar síðan á sjötta áratugnum og er það algengt byggingarefni sem notað er í til dæmis skútur, vöruflutningaskip af smærri gerðinni, umgerð sportbíla, í vængi vindmylla og ýmislegt annað. Fjölesterplast hefur mikið viðnám gegn leysiefnum og sýrum.

 

Það sem er sérstakt við plastið sem Proline notar til að steypa ný rör er að það er stýrenfrítt og sterkt með glerflögum sem gerir það að verkum að rörin standast vélrænt slit mjög vel. Kosturinn við að styðjast við stýrenfrítt plast er að það gefur frá sér minni lykt við húðun en fjölester sem styrkt er með stýren. Þetta er skilyrðislaus krafa þar sem vinna þarf með efnið inni í íbúðum. Þessi fjölester verkar einnig sem vörn gegn tæringu. Sama efnið er notað á olíuborpöllum sem slit- og tæringarvörn með mjög góðum árangri.