VEIGJANLEG LAUSN FYRIR BORÅSBOSTÄDER


AB Bostäder
í Borås kaus að vinna í samstarfi við Proline í gegnum rammasamning um endurlögn skólp- og frárennslislagna. Hingað til hefur Proline fengið verkefni í 300-400 íbúðum þar sem lagfæringa frárennslisröra er þörf. Boråsbostäder sem samanlagt hefur rúmlega 7000 íbúðir og 500 húsnæði til umráða, gerir ráð fyrir að lagfæra þurfi um það bil 200-400 íbúðir á ári. Samhliða því að Proline lagfæri frárennsliskerfin er einnig gert við baðherbergin í sumum íbúðanna.

 

- Með Proline höfum við aðgang að sveigjanlegri lausn þar sem hægt er að gera við baðherbergin án þess að taka tillit til ástands frárennslisröranna. Í sumum íbúðum eru viðgerðir baðherbergjanna nú þegar hálfnaðar án þess að frárennsliskerfin séu lagfærð. Með hefðbundinni aðferð þarf maður einnig að brjóta upp þessi nútímabaðherbergi til að komast að frárennslisrörunum. Kjósi maður í staðinn aðferð Proline er manni frjálst að velja hvort og hvenær gera skuli við þau. Samtímis fáum við lausn þar sem truflun er haldið í lágmarki. Við og íbúar okkar erum mjög ánægð með Proline, fyrir okkur er þetta frábær lausn sem felur í sér minna álag fyrir íbúana og einnig er hægt að lækka viðgerðarkostnaðinn í heild sinni, segir Ingvar Gabrielsson, byggingatæknifræðingur hjá AB Bostäder í Borås