ATVINNUREKANDI ÁRSINS 2007
Proline hlaut verðlaun Swedbank sem atvinnurekandi ársins árið 2007. Þau verðlaun eru meðal virtustu verðlauna atvinnulífsins í Svíþjóð. Verðlaunað er fyrir hugsjónir og drifkraft, hugmyndir og athafnasemi atvinnurekandans. Atvinnurekandinn á einnig að sýna að vöxtur eigi sér stað í starfsemi fyrirtækisins, að starfsemi fyrirtækisins sé í stöðugri framþróun og að tillit sé tekið til umhverfisins.
Alls hlutu 350 fyrirtæki, víðsvegar um Svíðþjóð, tilnefningu. Verðlaunin voru afhend af Pehr G Gyllenhammar og varaforstjóra Swedbank Jan Lidén
á ráðstefnunni „
Fjárhagslega staða okkar 2007” í Globen í Stokkhólmi.
Rök dómnefndarinnar voru eftirfarandi:
”Verktaki með hugmynd sem hefur bylt bransanum. Honum hefur tekist að taka uppfinninguna alla leiðina frá hugmynd til arðbærs og stækkandi fyritækis upp á eigin spýtur. Þrjósk og þrautseig vinna í erfiðum bransa sameinuð mörgum einkaleyfum hefur stuðlað að árangrinum. Umhverfisvænar lausnir á lágu verði opna dyr fyrir sigurför um heim allan.”