BRF ANKARKRONAN Í LULE Å KAUS PROLINE


Brf Ankarkronan í Luleå í Norður-Svíþjóð kaus Proline til að lagfæra skólp- og frárennslislagnir sínar. Verkefnið sem hófst snemma vors árið 2007 felur í sér öll húsnæði félagsins. Samanlagt eru þetta 312 íbúðir í 19 þriggja hæða húsum með eða án kjallara. Íbúafélagið Ankarkronan er íbúðahverfi og hófst bygging þess í byrjun sjöunda áratugarins.

- Við byrjuðum á því að skoða hefðbundna aðferð en við höfðum heyrt um Proline og Proline-aðferðina, þannig að við fórum í vinnustaðarheimsókn þegar verkefni var framkvæmt í Boden til að skoða þetta nánar. Þegar við hugleiddum þá kosta sem Proline býður upp á bæði lágan kostnað sem og lipurlega framkvæmd var valið auðvelt, segir Janerik Johansson varaformaður hjá Ankarkronan.

- Verkefninu var til að byrja með skipt niður í þrjá áfanga á þremur árum. Eftir að Proline hafði lagfært leiðslurnar í fyrsta húsinu uppgötvuðum við að leiðslurnar okkar voru að hluta til í mun verra ástandi en við höfðum gert ráð fyrir. Til að forðast vatnsskemmdir höfum við því kosið að láta verkefnið halda áfram án hlés uns öllum húsnæðum hefur verið sinnt. Vinnan gengur mjög vel, þetta eru ábyrgir og frábærir strákar sem leysa verk sitt virkilega vel af hendi. Íbúarnir eru líka mjög ánægðir, sumir þeirra sem ég hef rætt við hafa varla tekið eftir því að Proline hefur verið hér. Það eru góð ummæli, segir Janerik Johansson í lokinn.