Almennar kröfur sem við gerum til starfsmanna okkar eru eftirfarandi:

 

HREINSKILNI OG SKÝRLEIKI

Nauðsynlegt er að vera hreinskilinn og skýr í öllum aðstæðum.

 

ÞJÓNUSTUMIÐUÐ OG ÞÆGILEG VIÐMÓT

Við vinnum á heimilum og á vinnustöðum, til dæmis á sjúkrahúsum þar sem við þurfum að eiga samskipti við bæði starfsfólk og sjúklinga, í mismunandi ráðuneytum þar sem margir koma og fara. Við eigum einnig í samskiptum við fasteignaeigendur og forstöðumenn. Í öllum samskiptum og aðstæðum þurfum við að koma fram við fólk á þægilegan og þjónustumiðaðan máta. Þegar við höfum lokið vinnu skal heldur ekki sjást að við höfum verið þar að verki.

 

AÐ AXLA ÁBYRGÐ OG AÐ SINNA VINNU SINNI MEÐ HEILUM HUG

Allir í starfsemi okkar axla persónulega ábyrgð á vinnu sinni og framkomu. Því er þess krafist að allir sinni vinnu sinni með heilum hug sem felur einnig í sér mikið frelsi undir ábyrgð. Við leggjum mikið upp úr að allir starfsmenn séu með þá hæfni og menntun sem nauðsynleg eru fyrir hvert verkefni.

 

Hafir þú áhuga á að vita meira um hvernig það er að vinna hjá Proline eða að senda inn umsókn, skalt þú hafa samband við þá skrifstofu okkar. Sjáðu heimilisföngin undir hlekknum ”Hafðu samband við okkur” eða sendu okkur tölvupóst á proline@proline.is.