ALGENGAR SPURNINGAR
Hve lengi endast rörin? Hve lengi get ég beðið með lagfæringar? Eru til viðmið?
Þetta eru algengustu spurningarnar sem okkur berast frá fasteignaeigendum. Svörin eru því miður oft á tíðum neikvæðari en mann grunaði. Sérstaklega þegar kemur að rörum í blokkum sem byggðar voru á sjöunda og áttunda áratugnum. Lífslengdin er mjög breytileg.
Í mörgum húsum byggðum jafnvel á níunda áratugnum er hægt að finna tæringarskemmdir og sprungin plaströr. Það er einnig mjög erfitt að meta lífslengdina þar sem slitið á rörunum er háð aldri þeirra, gerð efnisins og að sjálfsögðu notkun þeirra bæði þegar kemur að því hve oft hefur verið sturtað niður og hverju menn hafa sturtað niður. Að jafnaði er þó mögulegt að segja að járnrör tærist um u.þ.b. 1mm á tíu ára fresti. Jafnvel þó að maður ætti að vera fagmaður til að sannreyna umfang skemmdanna er hægt að fyrirbyggja sumt ef maður veit við hverju á að bregðast.
Get ég sjálf/ur skoðað eða athugað í hvaða ástandi rör mín eru?
Já, skoðið sjáanlegu rörin, til dæmis í kjallaranum. Séu brúnir blettir á rörunum eru þau að öllum líkindum gegnumryðguð. Vegna fitugra óhreininda innan í rörinu rennur frárennslisvatnið þó ekki í gengnum götin. Ýti maður með hnífi sér maður hvað rörin eru í lélegu ástandi. Því miður getur það þó verið þannig að þótt rörið virðist heilt á sjáanlega hlutanum gæti það verið sundurryðgað á öðrum stöðum. Sveigjur eru sérlega viðkvæmir hlutar. Hafið einnig í huga að hafi lekið áður, ætti að ganga úr skugga um orsökina. Sé ætlunin að hreinsa rörin, hafið þá í huga að botnfallið í rörunum gæti verið það eina sem heldur rörunum þéttum.
|
|
Er hægt að nota aðferð Proline við aðrar viðgerðir í fasteigninni?
Já, svo sannarlega. Endurlögn með okkar aðferð er óháð öðrum viðgerðum í fasteigninni. Hægt er að framkvæma hana fyrir, samtímis eða eftir aðrar viðgerðir. Þetta gerir fasteignaeigandanum kleift að ákveða sjálfur hvaða inngrip skuli gera og hvenær, án þess að því sé algjörlega ráðið af því hvort frárennslisrörin séu í slæmu ástandi eður ei. Unnt er að tengja rör sem hefur verið lagfært með Proline aðferðinni við festingar og skrúfbúta ef þörf er á frekari tengingum við frárennsliskerfið síðar meir.
Í húsfélagi mínu hafa margir nú þegar gert við baðherbergi sín og eldhús en við höfum ekki skipt um fallstamma og rör. Þurfum við að rífa þau út til að lagfæra frárennsliskerfið?
Nei, með aðferðinni okkar er ekki þörf á niðurbroti. Við steypum nýju rörin með því að fara inn í gegnum tengingarnar fyrir salerni, vask, niðurfall og vaskborð. Þegar við erum búin tekur þú varla eftir því að við höfum verið þar.
Er Proline-aðferðin einungis notuð í íbúðum?
Nei, hægt er að beita aðferðinni í öllum gerðum bygginga og húsnæða. Við höfum meðal annars framkvæmt viðgerðir á sjúkrahúsum, á elliheimilum, í verslunarhúsnæðum, hjá iðnaðarfyrirtækjum og í friðuðum húsum.
Hver er aðalkosturinn við að nota Proline-aðferðina?
Snilldin við aðferð okkar er að áhrifum hennar á daglegt líf íbúa og fasteignaeigenda er haldið í lágmarki. Yfirleitt vinnum við aðeins einn dag inni í íbúðinni og er hægt að nota vatn og frárennsli á venjulegan máta að kveldi, að nóttu og um morgun.
Hvaða öryggi getur Proline sem fyrirtæki boðið mér upp á?
Proline er stöðugt og framsýnt fyrirtæki sökum stærðar okkar og sterkra eigenda, iðnaðarsamtakanna Lifco. Við erum það örugg með tækni okkar og hæfni starfsmanna að okkur er stætt að veita þér 10 ára ábyrgð á vinnu okkar.
Er hægt að hreinsa rörin eftir endurlögn með Proline-aðferðinni?
Já. Rörið þolir bæði háþrýstihreinsun og vélræna hreinsun á sama hátt og PVC-frárennslisrör. Það þolir einnig hreinsun með efnafræðilegum hreinsunarefnum.
Hefur endurlögn áhrif á gamla rörið?
Algengast er að eftir endurlögn með Proline aðferðinni gefi lagnirnar frá sér minni hávaða þar sem innra rörið virkar sem hljóðdeyfir. Þrátt fyrir að vídd röranna minnki örlítið eykst flæðið miðað við gömul pottrörin vegna þess að minna botnfall sest fyrir. Einnig má nefna að þegar frárennslisrör eru framleidd er víddin ávallt meiri en þörf er á.
Í hve mörg ár varir ábyrgðin?
Hjá okkur færð þú 10 ára ábyrgð. Það eru 5 árum meira en ábyrgðin hjá ABT 06.
Við hvaða rörvíddir er hægt að beita Proline-aðferðinni?
Venjulega frá 2 til 8 tomma. Við höfum þó beitt aðferðinni við bæði minni og stærri víddir, allt fer eftir aðstæðum hverju sinni.