BRF ALEN I BODEN KAUS TRUFLUNARLAUSA LAUSN MEÐ PROLINE
Brf Alen í Boden í Norður-Svíþjóð kaus Proline til að lagfæra frárennslisrörin sín. Félagið á þrjú hús, tvö háhýsi með 50 íbúðum í hvoru og eitt þriggja hæða hús með 20 íbúðum ásamt skrifstofum og verslunarhúsnæðum á jarðhæð. Fasteignirnar voru byggðar á árunum 1961-1965.
Stjórninni var falið það verkefni að semja við fyrirtæki um umskiptingu fallstamma og til að byrja með bað hún um tilboð á hefðbundinni umskiptingu.
- Okkur fannst þá að það yrði of kostnaðarsamt, segir Anders Johansson-Lång, formaður félagsins. Meðlimir félags okkar hafa háan meðalaldur sem gerði strangari kröfur til þess að vinnan yrði framkvæmd með sem minnstu truflunum og kostur var á. Við kusum því að vinna með Proline til þess að mögulegt væri að lagfæringarnar færu fram án truflunar og til þess að ekki yrði þörf á að yfirgefa íbúðirnar á meðan á þeim stæðu. Í sambandi við lagfæringar Proline voru einnig lagðar nýjar vatnsleiðslur í stigahúsunum. Með þessum hætti þurftum við ekki að brjóta upp fölsin í veggjunum. Með þessari lausn sparaði félagið milljónir miðað við hefðbundna umskiptingu. Vinnan hófst í lok árs 2005 og henni lauk í október 2006. Við erum mjög ánægð með Proline og þá lausn sem við höfum fengið núna. Vinnan hefur gengið mjög vel, frá upphafi til enda, segir Anders.