FRÁBÆRT AÐ GETA SLEPPT ÞVÍ AÐ VERA VITUR EFTIR Á. SÉRSTAKLEGA ÞEGAR ÁTT ER VIÐ SKÓLP OG FRÁRENNSLI.

 

Maður tekur að öllu jöfnu ekki eftir skólp- og frárennslisrörum, svo lengi sem þau virka eins og þau eiga að gera. Það er ekki fyrr en þau fara að leka sem maður er minntur óþyrmilega á að jafnvel skólp- og frárennslisrör hafa sinn endingatíma. Oftast er viðhald á skólp- og frárennslisrörum mál sem þarfnast vandasamrar ákvörðunar jafnt sem forgangsröðunar af hálfu íbúðaeigenda: Hvað skal gera? Og hve lengi skulum við bíða með lagfæringar? Í húsum sem byggð eru upp úr 1950 og 1960 þarf að lagfæra skólp –og frárennsli, en þess gæti verið þörf að skoða jafnvel hús sem byggð eru á áttunda áratugnum. Við hjá Proline hreinsum rörin og skoðum þau með myndbandsvél sem gefur þér verðmætar upplýsingar um hvaða aðgerðir þarf að fara út í þínu húsi.

 

Að bregðast við tímanlega og fyrirbyggja vandamál áður en í óefni er komið getur skipt afar miklu máli kostnaðarlega séð. Með okkar tækni sem felur í sér að steypa nýtt rör innan í því gamla færð þú alveg nýtt frárennsliskerfi án þess að skipta því gamla út. Ef skaðinn er skeður og frárennsliskerfið í húsinu þínu lekur, þá skal að sjálfsögðu gera við það. Við gerum einnig við slík rör án þess að rífa niður veggi og brjóta upp gólf. Allt í allt er okkar aðferð kostnaðarminnsta leiðin hvort sem um er að ræða að fyrirbyggja skemmdir eða að lagfæra þær sem nú þegar hafa orðið.

 
” Þó svo að við höfum aðeins haft einn leka, á einum stað í blokkinni og leiðslurnar geta haldið í þrjú ár til...hve lengi getum við beðið?”