PROLINE – STÖÐUGUR OG TRYGGUR FÉLAGI


Lánshæfiseinkunn Proline er þrefalt A (AAA) og er það hæsta matið á lánshæfi samkvæmt Soliditet (leiðandi lánshæfismatsfyrirtæki á Norðurlöndunum). Þetta er vottur um að Proline er stöðugur og fagmanlegur félagi bæði fyrir viðskiptavini og söluaðila.

 

Lánshæfismatskerfi Soliditet er byggt á traustu líkani sem búið hefur verið til út frá einstakri reynslu af útláni – unnt er að spá fyrir um 90% af gjalþrotunum á frumstigi sem gera mönnum kleift að koma í veg fyrir þau. Kerfið veitir með einstökum hætti samnorrænt lánshæfismat sem greinir bæði áhættu og möguleika í viðskiptalífinu.

 

Hvers er krafist til að ná AAA?

Meira en 2400 ákvörðunarreglur liggja til grundvallar við matið. Ferskar upplýsingar um fyrirtæki í Svíþjóð eru sóttar hjá Bolagsverket, SCB, Skatteverket, Tingsr ätten, Kronofogdemyndigheter o.fl. Lánshæfiseinkunnin þrefalt A (AAA) er byggð á ýmsum þáttum innan fyrirtækja. Meðal annars er lagt mat á:

Aldur/starfsemi, eiganda/stjórn, fjárhagsstöðu og greiðslugetu.
 

Eftirfarandi eru nokkrar af þeim kröfum sem gerðar eru til þess að ná þreföldu A-i:

  • Félagsform fyrirtækis skal vera hlutabréfafélag
  • Félagið þarf að minnsta kosti að vera fjögurra ára gamalt
  • Samanlögð upphæð greiðsluábendinga þarf að vera lág í samanburði við eigið fjármagn.
  • Áætlað eigið fjármagn þarf að minnsta kosti að vera 200.000 sænskar krónur.
  • Lykiltölur þurfa að vera töluvert betri en meðaltal bransans.
  • Félagið þarf að velta að minnsta kosti 2.000.000 sænskra króna.
  • Fyrirtækið þarf að vera stöðugt með jafna og jákvæða þróun.
  • Stjórnin þarf að vera ábyrg og traust.